23 May 2013

Heiðdís Helgadóttir


Munið þið eftir Uglunum sem Heiðdís vinkona mín teiknar svona snilldarlega og ég bloggaði um hér ?

Mörgum til mikillar gleði fást þær nú í Mýrinni í Kringlunni en hver ugla kemur einungis í 25 eintökum og eru þær seldar innrammaðar, eins og þið sjáið á myndinni hér að ofan.

Hér getið þið svo fylgst með öllu því nýjasta sem Heiðdís er að gera.

Sjón er sögu ríkari, ég segi það satt.

Hátíðarkvöldverður með Hellas


Kjóllinn sem ég ætlaði að fara í er ekki enn kominn (demitt) þannig kannski er hún Sarah blessunin bara svikari eftir allt saman ?! Ég held samt enn í vonina að kjóllinn skili sér ;-)

En þá var það bara hin Zara sem bjargaði mér á síðustu stundu ( eins og svo oft ) og svo er fallegi græni jakkinn minn frá h&m.

22 May 2013

REPEAT !

SVART !

Stækkið til að sjá betur!

Loksins pósta ég myndum af myndunum mínum sem ég lét ramma inn í svarta mismunandi ramma með svörtu kartoni. Ég var mjög stressuð að sækja þær frá innrammaranum því þetta kostaði dáldið mikið ( ég lét ramma 9 myndir ) og ég hafði aldrei séð þetta gert áður. 

En ég er mjög ánægð með útkomuna og finnst þetta koma mjög vel út ( fjúkk). 

Hvað finnst ykkur ? 

20 May 2013

Hellas Verona í SERIE A


Hellas í SERIE A !

Það var fagnað af öllum lífs og sálarkröftum, fram á nótt og fólk er enn að fagna. Glaðari stuðningsmenn hef ég ekki séð á ævinni. Það eru allir að springa úr gleði og hvar sem við komum er Emil fagnað ákaft og fólk þakkar fyrir alla þá gleði sem hann og liðsfélagar hans hafa fært borginni. Ég verð stundum meir að hlusta á þessar þakkaræður, því hér á Ítalíu er fótbolti ekki bara fótbolti. Þetta snýst um svo margt annað líka - heiður borgarinnar á landsvísu til dæmis.

Laugardagurinn var stór dagur í okkar lífi. Við Emil höfðum beðið eftir þessum degi í þrjú ár en Veronabúar í heil ellefu. Á þremur árum hefur Emil spilað yfir 100 leiki með liðinu og átt sinn þátt í því að liðið er nú komið úr þriðju deild og á meðal þeirra bestu á Ítalíu.

Þegar við fluttum hingað til Verona, haustið 2010 vorum við alveg miður okkar. Ég hringdi skælandi í mömmu og Emil kom ekki upp orði því hans markmið var að sjálfsögðu að fara í lið á meðal þeirra bestu, en það tókst ekki í það skiptið. Þessi pistill sem ég skrifaði á Pressuna á sínum tíma lýsir þessu öllu ágætlega.

Drengurinn tók því málin í sínar hendur og kom ekki bara sjálfum sér í úrvalsdeildina heldur heilu liði með 30.000 blóðheita stuðningsmenn sem elska liðið sitt afar heitt á bakinu, ef hægt er að orða það svo. Ég myndi segja að þessi glæsilegi árangur lýsi honum Emil almennt mjög vel og er ég alveg rosalega stolt af honum.

Fyrsta árið brosti Emil ekki á æfingasvæðinu, svo ákafur var hann að standa sig. Stuðningsmenn Hellas halda í alvöru að hann brosi aldrei en strákarnir í liðinu hafa þó séð hann brosa núna, samt meira í ár en í fyrra. Fyrirsögnin í blaðagrein sem birtist í blöðunum í dag og ég póstaði hér að ofan er "hver hlær" en fólkinu hérna finnst mjög merkilegt að Emil sé í alvöru brosandi ( haha ). Þessi mynd var líka tekin frá mér í gær og sett á facebookið hjá Hellas og hefur hún fallið einstaklega vel í kramið en ég held að það sé aðallega því Emil er brosandi á henni ;-)

Að sjálfsögðu brosir Emil á hverjum degi, enda einstaklega ljúfur og dagfarsprúður maður en hann brosir alveg mjög breitt þessa dagana.

Við erum semsagt að springa úr hamingju yfir að hafa tekist það sem við ætluðum að gera og ég hlakka til að sjá manninn minn spila á meðal þeirra bestu á næsta tímabili. Þakklætið og gleðin sem býr í brjósti mér er ólýsanleg og ég mun aldrei getað þakkað nógu mikið fyrir það að hafa fengið að taka þátt í þessu verkefni með Emil, hafa fengið að kynnast öllu því frábæra fólki sem hér býr og að verkefnið hafi í alvörunni átt sér stað í einni fallegustu borg Ítalíu, Verona.

Lífið er yndislegt og gæti ekki verið betra. Mamma hafði rétt fyrir sér þegar hún sagði fyrir þremur árum að þetta væri það besta sem gat komið fyrir okkur. Svo sannarlega hafði hún rétt fyrir sér. Þetta er það allra besta !

Síminn minn varð batteríslaus í öllum gleðskapnum og því verða þessar myndir að duga - sorry ;-)

19 May 2013

Iittala fegurð


Ég fæ gestina okkar stundum til að ferja brúðargjafirnar okkar hingað út fyrir mig - eina og eina í einu. Nú síðast fékk ég Sólrúnu til að taka m.a þessa einstaklega fallegu Iittala skál fyrir mig. Skálina hafði ég séð í ArtForm á Skólavörðustíg en hún var ein sinnar tegundar á landinu - og við vorum svo heppin að fá hana í gjöf.

Hér eru nánari upplýsingar um gripinn ( samt ekki í sama lit ) - fyrir áhugasama.

14 May 2013

Blómvöndur dagsins


Ég ætlaði ekki að kaupa þessi blóm, þó falleg séu, en blómasalinn minn linnti ekki látum fyrr en ég var búin að taka kassann sem þau voru í og setja hann í bílinn. Hann semsagt gaf mér þau ásamt hvítu rósabúnti í kaupbæti með orkideunum sem ég keypti - snillingurinn sem þessi strákur er.

Grillpartý hjá Charlotte




Við fórum æðislegt í grillpartý/afmæli úti í sveit í gær. Þar voru dýr ( hestar, hænur og kanínur ), stór leiktæki og fótboltavöllur. Það er sama hvað er í boði, Emanuel ( 17 mánaða) leikur sér bara með bolta. Í gær fékk hann lítinn tveggja ára snilling og son liðsfélaga Emils til að sparka með sér - og þeir actually spörkuðu á milli og í markið öðru hvoru líka !!

Mér finnst mjög merkilegt að hann hafi svona mikinn áhuga á fótbolta því við höfum ekkert sérstaklega verið að sýna honum bolta - en hann líkist föður sínum að svo mörgu leiti og þá er þessi fótboltaáhugi kannski bara nokkuð eðlilegur.

Fyrir áhugasama er bláa skirtan hans Ema úr Zara og buxurnar sömuleiðis. Mér finnst einstaklega flott að klæða stráka í svona ljósbláar skirtur en ég held að þær fari öllum vel og dragi fram fallegan lit í húðinni. Græna derhúfan er frá h&m en armbandsúrið fengum við gefins frá gjafmildri konu niðri í bæ.

... kossinn á kinninni fékk svo Emanuel frá vinkonu sinni á leikskólanum en hún beit hann óvart líka í þetta skiptið.

11 May 2013

FORZA HELLAS


Það kemst eiginlega ekkert annað fyrir í okkar lífi þessa dagana en Hellas og toppslagurinn um sæti í Serie A. Liðið vann rosalega mikilvægan sigur á Juve Stabia í dag þannig eitt stig úr síðasta leiknum, sem er á laugardaginn næsta, dugir þeim til að fara upp.

Ég fæ alveg gæsahúð að hugsa um þetta en það sem gerir þetta allt alveg ennþá skemmtilegra er að við verðum með góða gesti sem verða vitni að þessum stóra áfanga með okkur. Nú bara að krossa fingur og AVANTI I BLU !

10 May 2013

Góða helgi :-)

9 May 2013

Skreytingarnar









Háborðið
Ég fékk fyrirspurn á e-mailið mitt varðandi skreytingarnar í brúðkaupinu okkar Emils og ákvað því að henda hingað inn nokkrum af þeim myndum sem ég á úr veislunni, þar sem skreytingarnar sjást sem best. Ef einhverjir fleiri geta fengið innblástur og hugmyndir af þessum myndum, þá er það bara gaman :-)

Bóndarósir, orkideur, kerti og blöðrur. Fallegt leirtau og vel brotnar saman tauservíettur - einfalt og fallegt og hægt að framkvæma mjög auðveldlega án aðstoðar frá fagaðila. Ég mæli með því.

Wall Sticker by Ferm Living





Mér finnst svo sætt að hafa vegglímiða í barnaherbergjum og nú rétt í þessu rakst ég á þessa einstaklega fínu límmiða á heimasíðu Ferm Living. Þetta er ný vara hjá þeim og því mátti ég til með að deila þessu með ykkur.

Límmiðarnir hér að ofan eru NEONbleikir ( súper kúl ) og í störnupakkanum til dæmis eru 49 stjörnur á 17.50 evrur, sem mér finnst vera fínt verð. Límmiðarnir eru líka til í svörtu, fyrir þá sem vilja ekki bleikt í herbergið sitt.

Ef einhver hefur áhuga þá er hægt að versla límmiðana hér

Mini Micro




Þetta er hlaupahjólið sem ég bloggaði um hér.

Emanuel er svo ánægður með að geta loksins leikið sér á hlaupahjóli eins og stóru krakkarnir sem hann sér daglega á götum Veronaborgar. Nú rúllar hann sér sitjandi um allt, svo ánægður með lífið. Svo þegar það er orðið "barnalegt" að sitja skrúfa ég sætið af og þá er mamman búin að redda málunum. Það fylgdi einnig með stærra stýri þannig þetta ætti að duga honum næstu 2-3 árin eða svo. Allt hjólið er mjög vandað og dekkin eru góð, eins og á góðum línuskautum. Ég geri því ráð fyrir að það sé mjög endingargott sömuleiðis.

Fyrir áhugasama eru frekari upplýsingar um hlaupahjólið að finna hér.

8 May 2013

Símamyndir frá liðinni viku


Hér eru nokkrar símamyndir frá liðinni viku - eða frá því að Sonja og Jói voru hér og þangað til í morgun. Mér finnst myndirnar verða svo miklu fallegri þegar það er sól á þeim og því er ég mjög busy með myndavélina þessa dagana. Neðstu myndina tók ég nú í morgun, í steikjandi hita úti í garði á leið minni niður í bæ að útrétta. 

Ég fór meðal annars með nokkrar af uppáhalds svart/hvítu myndunum mínum í framköllun og þaðan beint í innrömmun. Ég bað innrammarann um að setja þær í svarta ramma með svörtu kartoni í staðinn fyrir það hefðbundna hvíta. Ég hlakka til að sjá afraksturinn og set hann hingað inn vonandi í vikulok - eða í byrjun næstu viku.

Annars er allt gott að frétta héðan af okkur. Frændur Emils voru í heimsókn þessa vikuna en fóru i morgun og svo er von á tólf manns til okkar í næstu viku. Það er nefnilega möguleiki á að Hellas tryggi sér sæti í efstu deild ( Serie A ) á laugardaginn næsta og ef ekki þá, þá tekst það vonandi í vikunni eftir það þann 18.maí.  Að því tilefni ætla nokkrir fjölskyldumeðlimir að koma í heimsókn og fagna með okkur ef markmiðið næst - og þá verður sko paaarrrteyyyy !!!